Hvað er innifalið í sköttum landsmanna?

Það gleymist alveg að geta þess í fréttinni hvað er innifalið í dönskum sköttum..T.d frí heilbrigðisþjónusta fyrir alla, frí tannlæknaþjónusta og tannréttingar fyrir börn upp að 18 ára aldri og 18-25 ára ungmenni fá niðurgreidda tannlæknaþjónustu. Leikskóla og skólagæslu gjöld eru tekjutengd þannig að námsfólk og þeir ...lægst launuðu fá frípláss fyrir börnin sín...Get haldið lengi áfram og svo gleymist alltaf að geta þess, þegar talað er um þessa blessuðu matarkörfu, að verkamannalaun í danmörku eru 128 dkr á tímann sem eru 2688 ísl, svo hlutfall launa sem nota þarf í heimilis innkaup er mikið lægra í Danmörku enn á Íslandi!!!
mbl.is Danir borga mestu skattana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Afhverju þarf að vera að telja upp hvað er innifalið í sköttum þegar fréttin er um hver er að borga mestu skattana?

Raging (IP-tala skráð) 30.6.2010 kl. 11:00

2 identicon

Vegna þess að það skiptir miklu máli hvað er innifalið....ég myndi t.d ekki vilja borga 38% skatt eins og ég geri núna í DK, og eiga svo eftir að borga alla heilbrigðisþjónustu, tannlæknaþjónustu ofan í eins og er gert t.d á Íslandinu góða.... Og margt annað sem áður er upptalið...

Kolbrún Ævarsdóttir (IP-tala skráð) 30.6.2010 kl. 13:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kolla og Jonni
Kolla og Jonni

Við hjónin búum í Grenaa í Danmörku ásamt 4 börnum okkar. Við fluttum hingað í júní 2003. Jonni er búinn með Maskinmesterskolen í Árósum og útskrifaðist þaðan 27. júní 2008. Fékk vinnu 8.des 2008 hjá Dong Energi á Sjálandi. Kolla byrjaði í Verslunarskólanum í ágúst 2008. Gunnar 22 ára er fluttur að heiman og býr með kærustunni Michelle í íbúð hér í bænum. Ævar er 19 ára fullorðinn/unglingur, er í Menntaskóla og æfir fótbolta. Pétur er 13 ára fótboltastrákur/ lítill unglingur í 7. bekk í Friskóla og Kara Mist er 12 ára fótboltaboltastelpa í 6.bekk í Mölleskole og er að læra spila á fiðlu. Elsta dóttir okkar Sigurrós Yrja 27 ára er húsmóðir í Breiðholtinu, hún býr með kærastanum honum Sigurjóni, hann á tvær snúllur sem heita Ásta Margrét 12 ára, sem býr hjá þeim og svo er það litla Lovísa Rós 8 ára...;o)

233 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Kol fj62702
  • Kol fj62697
  • Kol fj62680
  • Kol fj62677
  • Kol fj62656

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 45421

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband