11.4.2008 | 15:41
Afmælisdagur Jonna
Nú er víst komið að því að skrifa fréttir af afmælisdegi húsbóndans, betra seint en aldrei Við fórum öll í vinnu og skóla um morgunin, ég vaknaði reyndar kl. 04.30 til að keyra Guffa í lestina í Arhus, hann fór svo með flugi heim til Íslands um hádegi eftir að hafa verið hjá okkur í viku. Ég fékk svo út úr dönskuprófinu, og fékk 7 samkvæmt nýja einkunnakerfi dana en það er sama og 9 samkv ísl kerfinu.
En svo vorum við öll komin heim um 3 leytið og þá komu Gitte og Henning til okkar í afmæliskaffi með börnin Mette, Idu og Peter. Þau komu hlaðin gjöfum handa afmælisbarninu, Ida gaf honum Nesquik og 1 ltr mjólk,, alltaf eitthvað spes í gangi á milli þeirra tveggja,, Mette og Peter gáfu honum konfektkassa og Gitte og Henning gáfu honum 6 rauðvínsstaup frá mér fékk hann jakka, frá Köru Mist og Pétri, 2 Björn Borg nærbuxur + teikningu og kúnstverk úr sprunginni blöðru og garni frá K.M og frá Ævari, Gunnari og Michelle fékk hann eitthvað voða fínt wiskí úr vínbúðinni inní bæ. Ég hafði um morgunin eftir keyrsluna með Guffa, bakað Karólínumarengs, Péturstertu og búið til túnfisksalat svo hann gæti nú boðið uppá eitthvað ef einhver kæmi. Svo um kvöldmatarleyti komu Alda, Borgar og Patrekur og færðu Jonna ísl ost og kokteilsósu svo þið getið nú ímyndað ykkur hvort ekki var veisla hjá mínum manni svo seinna um kvöldið komu Silla og Simmi, en þau komu svo aftur í gærkv og færðu honum mjög fínan bol. Mamma hans og pabbi hringdu svo og svo náttlega er hann búinn að fá fullt af afmæliskveðjum inná bloggið og nokkur sms. Og sendir bestu þakkir til allra sem mundu eftir honum
Viðbót 13.04
Ákvað að setja síðuna í sumarliti þar sem er búið að vera 12-14 st hiti með þónokkurri sól síðustu daga meira að segja er Jonni að slá garðinn í 1. skipti á þessu ári sem er reyndar 3 vikum seinna en í fyrra. En nú er komin tími á garðhúsgögnin DEJLIGT !!!
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt 13.4.2008 kl. 10:31 | Facebook
33 dagar til jóla
Bloggvinir
Tenglar
Bloggarar
Gullin okkar
- Pétur Jónsson
- Kara Mist Jónsdóttir
- Embla Eir Jónsdóttir
- Heiðar Kató Finnsson
- Sonja Bríet Steingrímsdóttir
- Patrekur Helgi Borgarsson
- Sunneva Huld Leósdóttir
Heimasíður
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæl og blessuð litla systir!
Og innilega hamingjuóskir með þennan flotta árangur í dönskunni! Meiri háttar hjá þér
Einnig hamingjuóskir með kallinn þinn! Hann fékk SMS frá mér á afmælisdeginum sínum.
Já það hefur nú verið heldur betur flott veisla hjá ykkur. Ég á nú eftir að upplifa þessar kökur hjá þér, hm,hm!
Ég hringi í þig seinna! Bið að heilsa Jonna og krökkunum þínum
Knús og klem frá stóru systur í Noregi
Hafdis Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 13.4.2008 kl. 21:34
Sæl öll
Kærar þakkir fyrir símtalið og fallega gjöf á afmælisdaginn minn, góðar kveðjur til ykkar allra
kv. Helga
Helga Eym (IP-tala skráð) 17.4.2008 kl. 11:06
Hæ hæ snúlla
Það hlítur að hafa verið veisla þegar Alda og Borgar komu með koktelsósuna og ostin hehehe......
Kveðja Helga H og fjölskilda.
Helga H frænka (IP-tala skráð) 18.4.2008 kl. 17:54
Usss... Til lukku með daginn elsku pabbi minn og varla skemma allar þessar gjafir... Og til hamingju elsku mamma mín með dönskuprófið þitt... Þú ert SNILLINGUR...!!! Og ég er rosalega stolt af þér...!!! Er í tölvutíma og hef þar af leiðandi engan tíma en það gengur allt skínandi vel og vonum framar að vanda... En elskelskogelsk og saknisaknisakn....
Kærleiksknús og krúsídúllur af þiðnuðum klakanum...
Ykkar Sigurrós Yrja...
Sigurrós Yrja (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 10:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.