Útskrift eða aðgerð, stelpuafmæli og eintóm gleði

Já, nú er bara búið að útskrifa mig sem betur fer Smile en ég fór til bæklunarlæknisins í Arhus í morgun, hann sagði mér að 1 af hverjum 100 sem færu í svona aðgerð eins og ég, sætu uppi með frosna öxl og enn færri með frosinn olnboga, en ég náttúrulega heppin Lottó vinningshafi enda bæði með frosna öxl og frosin olnboga Angry Þetta er ekki hægt að laga nema með aðgerð, sem gefur ca 50% líkur á einhverjum bata. Ég afþakkaði pent og sagðist vilja útskrifast, ekki fleiri aðgerðir TAKK. Hreyfigetan á ekki eftir að verða meiri en verkirnir gætu minnkað á næstu 2 árum ( þvílíkar gleðifréttir ) svo ég ætla bara halda áfram í Pollýönnuleiknum mínum og sópa þessu undir mottuna góðu sem endalaust tekur við Tounge  

Er búin að standa sveitt í bakstri, svona ef einhver skyldi kíkja á mig á sunnudaginn, já þetta er alveg ótrúlegt en satt að ég verð 45 ára 1. júní, þetta er ekki prentvilla ég er bara svona ótrúlega ungleg Halo en þér er semsagt boðið í kaffi og kökur, hlakka til að sjá þig Kissing

Já svo er eintóm gleði hjá Ævari mínum í dag, SÍÐASTI SKÓLADAGURINN, þeir voru komnir á fætur kl 7. í morgun hann og Nikolaj og svo farnir út að hitta skólafélegana kl 8. með bjór í annari og eintóma gleði í hinni og stórt bros yfir allt andlitið, því nú á sko að kveðja kennarana í dag. Það var fótboltakeppni hjá þeim, nemendur á móti kennurum og svo átti að fara í Parken á eftir og bara vera úti og hygge sig, enda veðrið til þess 23 st hiti og glampandi sól Cool Ævar var klæddur eins og Súperman nörd, í gammosíum, nærbuxum yfir og svo þröngum bol, með klút um hálsinn og Zorro gleraugu. Nikolaj var safarí gaur í Havai stuttbuxum og skyrtu með stráhatt á hausnum, þeir voru bara flottir, set inn myndir af þeim síðar Grin á svo von á 10-15 strákum hingað seinna í dag þar sem þeir ætla borða saman á veröndinni, svo skemmta þeir sér eitthvað áfram Halo þessar elskur. 

Ekki gékk nógu vel hjá Æbba mínum í bílprófinu, en hann lætur það ekkert trufla sig, reynir bara aftur Wink

Sigurrós mín er búin að fá úr öllum prófunum sínum og fékk bara 9ur fyrir utan eina 7u í tölvu, var hæðst í bekknum á Félagsfræðiprófinu með litla 9,7 duglega stelpan mín Kissing alveg hreint ótrúlega lík mömmu sinni á sumum sviðum Halo 

Jonni er svo að leggja lokahönd á verkefnið sitt og skilar næsta föstudag.........JIBBÍ

hætti núna, er að fara út að sóla mig Cool en endilega muna kvitta þegar þið kíkjið á okkur, fullt af heimsóknum en lítið um kvitt.

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Svaka góðar fréttir af þér góða mín, en það þýðir ekkert annað en að brosa útí annað og lifa með þessu. Hér er allt gott að frétta Hilda var að fara til Patreksfjarðar með kærastanum í einkaflugvél, sem pabbi Davíðs sendi eftir þeim til að fá þau í heimsókn, ekki slæmt það.  Hrönn og Steini koma heim frá Tenirife á þriðjudag, það verður voða ljúft að fá heim.  Eigðu góðan dag á sunnudaginn með fjölskyldunni, hugsum til þín með vatn í munni við tilhugsunina um allar terturnar.
bið voða vel að heilsa knús kveðjur til ykkar allra
Helga

Helga (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 15:43

2 identicon

Jahá þú lítur nú ekki útfyrir að vera deginum eldri en 25  gú gú eins og Patrekur sagði við þig í dag ekki 45 bara 25 :)

en við mætum á sunnudaginn í terturnar  hum hum elsku dúllan okkar :)

kiss kiss og knús kveðja Alda stóra frænka híhí

Alda (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 16:23

3 identicon

Hæ til hamingju med dömuna þína ekkert smá flott hjá henni :) ad sjálfsögdu mæti ég á sunnudag ætla sko ekki ad missa af þínum gódu kökum :) þar sem kikti ekki í dag enda ,,erfidur einstaklingur ,,eins og ég sagdi vid þig og madur vill nú ekki ad þú fáir alveg leid á manni hehe,, þá vil ég samt ekki ad þú gleymir mér alveg svo vid Stacy kíkjum á þig á morgun ,, ekkert smá huggun í því fyrir þig,, því audvitad saknar þú mín alveg helling :) knús knús

Silla (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 16:32

4 Smámynd: Eydís Hauksdóttir

Geggjaðar fréttir af sætu Yrjunni, vá ekkert smá flott og kúl hjá henni þessar einkunnir. Hún er náttlega bara langflottust og ég er að springa úr stolti yfir að eiga svona æðislega duglega frænku :-) Ég er nú ekki alveg nógu ánægð með fréttirnar af þér samt.... ekki gott að þurfa að sætta sig við frosna líkamsparta....

En auðvitað kíkjum við í ammmæliskaffi á morgun til þín dúllan mín, enda stórafmælisdagur þarna á ferð.

Knús og kyss, Eydís

Eydís Hauksdóttir, 31.5.2008 kl. 09:44

5 identicon

Til hamingju með afmælið  og takk bæði tvö fyrir að leyfa dömunni minni að fljóta með ykkur út aftur í sumar, hún er ekkert smá spennt

Hulda (IP-tala skráð) 1.6.2008 kl. 11:25

6 identicon

Hæ elsku Kolla mín, innilega til hamingju með afmælið, sjáumst vonandi fljótlega

Sigrún Soffía (IP-tala skráð) 1.6.2008 kl. 17:48

7 Smámynd: Hafdís Gunnarsdóttir

Sæl elsku Kolla mín!

Og hjartanlegar hamingjuóskir með 45 árin!

Vildi óska þess að ég hefði getað komið í tertur til þín! En því miður gat ég það ekki í þetta skiptið Vonandi kemst ég í næsta stórafmæli!

Rosalega er Sigurrós dugleg! MEIRIHÁTTAR FLOTT hjá henni Hún á eftir að ná langt, eldri prinsessan þín!

Ég veit náttúrulega bara allt um frosin öxl og pínu um olnboga. Þannig er það að maður bara venst þessu að vera svona, skrýtið en satt

Það verður nú gott fyrir ykkur þegar Jonni er búinn með skólann og þú komin í sumarfrí, þá getið þið farið að slappa aðeins af

Bestu kveðjur frá okkur hér í Noregi

Knús frá stóru systur

Hafdís Gunnarsdóttir, 1.6.2008 kl. 23:14

8 identicon

Hæhæ elsku Kolla frænka

Til hamingju með afmælið elsku frænka vonandi hafðiru góðan dag komumst ekki fyrr í tölvu og er búinn að glata öllum símanúmerum sökum ónýts síma!!

 en vildum bara senda þér bestustu bestu kveðjur frá ak

Hlökkum til að sjá ykkur í júlí

Knús og kram til þín

Arna Ýr, þúsund kossa kallinn og Heiðar Kató

Arna Ýr (IP-tala skráð) 2.6.2008 kl. 00:10

9 identicon

Hæ hæ,  elsku Kolla mín og til hamingju með daginn í gær,

þú yngist bara með hverju árinu sem líður .  Gaman að heyra hvað henni Sigurrós gekk vel í prófunum þið getið sko verið stolt af henni stelpunni .

Bið að heilsa öllum

Kveðja Eva stóra frænka

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 2.6.2008 kl. 16:05

10 identicon

Elsku Kolla okkar

Innilega til hamingju með daginn í gær. Vonandi áttirðu yndislegan dag með fjölskyldu og vinum. Við hlökkum mikið til að sjá þig í sumar og fá að sýna þér nýju íbúðina okkar

Kærar kveðjur frá öllum í Snægilinu

Eva og Embla (IP-tala skráð) 2.6.2008 kl. 16:45

11 identicon

Takk æðislega fyrir allar afmæliskveðjurnar  

Átti yndislegan dag með góðum ættingjum og vinum sem gerðu daginn yndislegan og ógleymanlegan fyrir mig, hlýt að hafa verðið þokkalega stillt og prúð síðastliðið ár því veðurguðirnir voru svo rausnarlegir að gefa mér besta dag ársins það sem af er, 27 st og glampandi sól

fullt af knúsi á ykkur öll

ykkar Kolla 

Kolla (IP-tala skráð) 2.6.2008 kl. 17:44

12 identicon

Hæ hæ elsku Kolla mín

Betra seint enn aldrei en bara innilega til hamingju með 45 árin vonandi hefurðu átt góðan dag og til hamingju með dóttirina ekkert smá dugleg í skólanum. 

Takk fyrir kveðjuna á gamla manninum  eða ég meinti þeim unga hehe.....  hann varð víst bara fertugur

 kossar og knúss á línuna kveðja Helga H og gullmolarnir.

Helga H frænka (IP-tala skráð) 4.6.2008 kl. 17:46

13 identicon

Sæl Kolla og til hamingu með daginn um daginn! við sjáumst þegar þú kemur heim pottþétt... hlakka til að sjá ykkur.

sigrún Soffía (IP-tala skráð) 10.6.2008 kl. 17:19

14 identicon

jæja ekki komin tími á blogg dúllan mín ?????

Alda (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 09:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kolla og Jonni
Kolla og Jonni

Við hjónin búum í Grenaa í Danmörku ásamt 4 börnum okkar. Við fluttum hingað í júní 2003. Jonni er búinn með Maskinmesterskolen í Árósum og útskrifaðist þaðan 27. júní 2008. Fékk vinnu 8.des 2008 hjá Dong Energi á Sjálandi. Kolla byrjaði í Verslunarskólanum í ágúst 2008. Gunnar 22 ára er fluttur að heiman og býr með kærustunni Michelle í íbúð hér í bænum. Ævar er 19 ára fullorðinn/unglingur, er í Menntaskóla og æfir fótbolta. Pétur er 13 ára fótboltastrákur/ lítill unglingur í 7. bekk í Friskóla og Kara Mist er 12 ára fótboltaboltastelpa í 6.bekk í Mölleskole og er að læra spila á fiðlu. Elsta dóttir okkar Sigurrós Yrja 27 ára er húsmóðir í Breiðholtinu, hún býr með kærastanum honum Sigurjóni, hann á tvær snúllur sem heita Ásta Margrét 12 ára, sem býr hjá þeim og svo er það litla Lovísa Rós 8 ára...;o)

220 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Kol fj62702
  • Kol fj62697
  • Kol fj62680
  • Kol fj62677
  • Kol fj62656

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 45452

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband