6.9.2008 | 12:43
Bílpróf og afmæli
Jæja þá er ég búin að fá tölvuna mína heim eftir erfið veikindi svo nú er engin afsökun að blogga ekki
Svo ég byrji nú á Gunnari að þá átti hann afmæli 29. ágúst og er orðinn 21 árs... alveg hreint ótrúlegt að vera svona ung og eiga svona fullorðin börn. En á afmælisdaginn komu þau í mat til mömmu eftir að hafa eytt deginum á Arhus í verslunarferð Gunnar, Michelle og Árný vinkona Gunnars frá íslandi sem var í heimsókn hjá þeim. Eftir matinn fóru þau svo öll í keilu ásamt Sigurrós og Ævari. Held hann hafi bara verið ánægður með daginn sinn þessi elska
Svo núna 3. sept fór Ævar í bílprófið og náði því með glæsibrag og er búinn að vera á rúntinum síðan. Alveg sama hvað hann er beðinn um, alltaf tilbúinn að skutlast. Skruppum til Öldu og Borgars í gær og sátum bara í aftursætinu eins og fínt fólk með einkabílstjóra, því hann bauð Pétri að sitja frammí hjá sér og Pétur auðvitað mjög ánægður með stóra bróðir. Svo fer hann með Köru Mist og Ídu á eftir að ná í Pétur til Öldu, því hann varð eftir í gær.
Ég er bara á fullu í skólanum og má hafa mig alla við, mér finnst þetta með því erfiðara sem ég hef gert. Að læra ensku og Þýsku á dönsku og svo auðvitað er ég í dönsku og samfélagsfræði líka. Það eru 2 dagar í viku þar sem ég er með öll tungumálin sama daginn og kem svo heim með allt í graut í hausnum á mér
stundum finnst mér ég sé að takast á við fullmikið, að vera 35 tíma á viku + heimaverkefni, en svo eftir smá hausverk og vangaveltur kemur þrjóskan uppí mér og ég hugsa ég skal geta þetta
vona bara að hendin klári þetta.
Af Jonna er það að frétta að hann er að fara í starfsviðtal í næstu viku hjá Tannhjólaverksmiðju í Randers, hann sótti um starf sem gæðastjóri hjá þeim svo það verður spennandi hvort eitthvað kemur útúr því, en annars á hann 4 aðrar umsóknir úti sem hann er að bíða eftir svörum með.
Læt þetta duga í bili knúsi knús á ykkur öll og ekki gleyma kvitta
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:46 | Facebook
266 dagar til jóla
Bloggvinir
Tenglar
Bloggarar
Gullin okkar
- Pétur Jónsson
- Kara Mist Jónsdóttir
- Embla Eir Jónsdóttir
- Heiðar Kató Finnsson
- Sonja Bríet Steingrímsdóttir
- Patrekur Helgi Borgarsson
- Sunneva Huld Leósdóttir
Heimasíður
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæhæ
Elsku Kolla frænka takk kærlega fyrir fallega pakkan frá þér
ofboðslega fallegur
ég fékk að opna hann alveg sjálfur og var það tekið upp á video
fyrsta sinn sem ég hef vit á þessu...fannst samt innihaldið minna áhugaverðara en pappírinn
en ég er orðinn frískur og mamma er að vona að ég ætli mér að vera það áfram
en við bíðum spennt frétta af nýjum innkaup af lúffum og stíbbum
Veðrum í bandi fljótlega kv. litla röflandi skriðdýrið
sem er algjört bíó og mamma
Arna Ýr (IP-tala skráð) 6.9.2008 kl. 21:30
Til hamingju með bílprófið Ævar minn, og farðu varlega í umferðinni
kv. Helga
Helga Eym (IP-tala skráð) 8.9.2008 kl. 08:49
Sæl Kolla mín!
Og til hamingju með 12 ára strákinn Pétur, 21 árs strákinn Gunnar!
Og æðislegt að Ævar sé kominn með bílprófið, alveg meiriháttar!!
Þetta með skólann! Ekkert mál fyrir þig! Þú ert það þrjósk og dugleg stelpa að þetta getur þú alveg. Mér finnst þú alveg rosalega dugleg og ég lít ekkert smá mikið upp til þín!
Já ég gæti bara þetta ekki!!
Hef það bara fínt. Er að bíða eftir að hádegismaturinn byrji. Svo klukkan 13:40 fer ég í sjúkraþjálfun er svo loksins búin kl. 14:00. Byrja daginn kl. 09:20.
Þannig að þetta er ekki afslöppun! En ég hef gott af þessu!
Gangi þér og ykkur öllum mjög vel!
Við heyrums þegar ég kem heim!
Knús frá stóru systur í sólinni
Hafdís Gunnarsdóttir, 8.9.2008 kl. 09:10
Jæja er loksins að hunskast til að kvitta hjá ykkur...
Takk innilega fyrir mig elsku fjölskyldan mín... yndislegt að vera hjá ykkur um daginn...
Það var svo dásamlegt að vera með Gunna og Pedda á afmælisdaginn þeirra... alveg hrikalega langt síðan það hefur gerst...!!! Og að borða saman bara systkinin...
Ég fæ alveg tár í augun og kökk í hálsinn við minninguna...
En þetta var dásamlegt í alla staði og eins og venjulega sakna ég ykkar alveg hrikalega en hlakka ennþá meira til að koma um jólin...
Elsku mamma mín... Ég er svo stolt af því sem þú ert að gera og hef algjöra og brestlausa trú á þér...
Og ég veit að þú ferð að fá vinnu elsku pabbi minn... fólk lætur bara ekki svona snilling framhjá sér fara nema það sé illa gefið...
Til hamingju með bílprófið elsku Æbbi minn...
skemmtilegt hvað þú ert orðinn bóngóður og greiðvikinn við að ná þessum merka áfanga...
Og skilaboð til litlu skrímslanna í lokin... munið að semja um sofi-fyrirkomulag...
Ég elska ykkur...
Ást, knús, sakn og elsk...
Rósin ykkar...
Sigurrós Yrja (IP-tala skráð) 9.9.2008 kl. 20:54
Hæ dúllan mín og takk fyrir síðast. Alltaf gaman að vera saman með ykkur
Og æðislegt að hitta Sigurrósu rúsínufrænkuna mína, hún er svo dugleg.... alveg eins og mamman sín. Þú ert algjört hörkutól elsku Kolla mín og ég dáist að þér að hamra þér í gegnum þetta nám.... úff, púff, ekki myndi ég nenna þessu þó ég fengi borgað fyrir það... Been there, done that... 
Knús og kram og sjáumst fljótlega
Eydís Hauksdóttir, 15.9.2008 kl. 16:59
Hildur þóra og Karles (IP-tala skráð) 19.9.2008 kl. 16:51
Rósin er byrjuð að blogga...!!!
En ekki hvað mar...
Kíkiði á www.perfspot.com/b/Yrja82 ...
Ást, knús, sakn og elsk...
Rósin ykkar...
Sigurrós Yrja (IP-tala skráð) 25.9.2008 kl. 16:06
Ég er búin að færa mig um set, þ.e. bloggið mitt en ástæða færslunnar stendur í blogginu svo að þið verðið bara að kíkja...
Það er www.yrja82.blogcentral.is ...
Elska ykkur
Rósin ykkar...
Sigurrós Yrja (IP-tala skráð) 26.9.2008 kl. 03:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.